„Eftir fimmtíu ár á sjónum og 37 ár á sama skipinu, sem er ábyggilega einsdæmi, er ég mjög sáttur við að hætta,“ segir Heimir Guðbjörnsson skipstjóri, sem kynnst hefur mörgum skemmtilegum mönnum á löngum ferli. Nú leggst hann í ferðalög og dregur fram veiðistöngina eftir áratuga hlé.