Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Zelensky segir metfjölda rússneskra hermanna hafa fallið í mars

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir ekki hafa orðið meira mannfall í Rússlandsher en í mars frá upphafi innrásarstríðsins. Hann segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að yfir 35 þúsund hermenn hafi verið drepnir eða særst alvarlega í síðasta mánuði.„Þetta er staðfest manntjón. Við geymum myndupptökur af öllum árásum,“ skrifaði Zelensky og bætti við að stjórnvöld væru tilbúin að deila upplýsingum með öllum samherjum sínum. Rússar hafa ekki enn tjáð sig um staðhæfingar Zelenskys.Árásir Úkraínuhers urðu til þess að rafmagnslaust varð í úkraínska héraðinu Zaporizhzhia sem Rússar hernámu sjö mánuðum eftir að innrásarstríðið hófst í febrúar 2022. Úkraínskir fjölmiðlar hafa birt myndskeið sem sýnir eldhnött stíga til himins eftir árás á tengivirki í iðnaðarhverfi í borginni Melitopol. EINN TÝ
Zelensky segir metfjölda rússneskra hermanna hafa fallið í mars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta