Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögreglumenn sem gæta borgarstjóra skildu eftir tösku fulla af vopnum utan við heimili hans

Fimm lögreglumenn sem gæta heimilis borgarstjóra Lundúna skildu fyrir mistök eftir tösku fulla af skotfærum og vopnum fyrir utan húsið á þriðjudagskvöld. Sadiq Khan er gætt allan sólarhringinn undanfarin ár vegna ítrekaðra líflátshótana sem hann segir að rekja megi til húðlitar hans og trúar.Talsmaður borgarstjórans segir atvikið mjög alvarlegt og að lögreglu beri að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki. Lögreglumönnunum hefur tímabundið verið vikið úr starfi meðan innri rannsókn stendur yfir.Breska götublaðið The Sun segir vegfaranda hafa fundið töskuna sem meðal annars innihélt Glock skammbyssu, öflugt rafvopn og hálfsjálfvirka vélbyssu.Vegfarandinn og sambýlismaður hennar segjast varla hafa trúað sínum eigin augum og velta fyrir sér afleiðingum þess að taskan hefði lent í röngum höndum.
Lögreglumenn sem gæta borgarstjóra skildu eftir tösku fulla af vopnum utan við heimili hans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta