Artemis II leiðangur bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er kominn hálfa leið til tunglsins, hefur ferðast 219 þúsund kílómetra út í geim.Artemis II áhöfnin, frá vinstri: Jeremy Hansen, Reid Wiseman, Christina Koch og Victor Glover um borð í Orion-hylkinu.AP/NASA / UncreditedOrion-farinu með fjóra geimfara innanborðs var skotið upp frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni á miðvikudaginn. Meðan farið hringsólaði jörðina gerði áhöfnin ýmsar prófanir og minni háttar viðgerðir áður en hún kveikti á eldflaugum þess í sex mínútur.Þá þeyttist það af stað í átt að tunglinu í hringferð sem á að taka tíu daga eða svo. Þá hefur áhöfnin ferðast lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert, eða um 405 þúsund kílómetra. Talsmenn NASA segja allt ganga að óskum.Ljósmynd af jörðinni sem Reid Wiseman tók ú