Frönsk stjórnvöld hafa ákveðið að setja á laggirnar neyðarlánaáætlun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem lenda í kröggum vegna hækkandi eldsneytisverðs af völdum styrjaldarátakanna í Mið-Austurlöndum.Fjármálaráðuneytið segir sjónum einkum beint að flutningafyrirtækjum og þeim sem stunda landbúnað og fiskveiðar sem býðst allt að fimmtíu þúsund evra lán til þriggja ára með 3,8 prósenta vöxtum.Áætlunin er í anda þess sem forsætisráðherrann Sebastian Lecornu kallaði eftir í síðustu viku. Franska stjórnin, líkt og fleiri um allan heim, leitar leiða til að minnka höggið af olíuverðshækkunum.Fjármálaráðuneytið segir að opinberi fjárfestingarbankinn Bpifrance veiti lánin og að einfalt verði að sækja um þau gegnum netið. Fjármunirnir verði til reiðu innan viku, að því er segir í yfirlýsingu ráðu