Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eldflauga- og drónaárásir halda áfram á báða bóga

Ísraelsher heldur áfram árásum á suðurhluta líbönsku höfuðborgarinnar Beirút þar sem höfuðvígi Hezbollah-hreyfingarinnar er að finna. Jafnframt tilkynnti herinn að Íranar hefðu skotið nokkrum eldflaugum að Ísrael í gær, sem loftvarnarkerfi hefðu að stærstum hluta grandað. Tíðindi bárust af skemmdum eftir klasasprengjuárás Íranshers á miðumdæmi Ísraels og í nokkrum borgum, þeirra á meðal stórborginni Tel Aviv. Herir Bandaríkjanna og Írans eru í kapphlaupi um að finna annan tveggja flugmanna F-15 orrustuþotu sem skotin var niður yfir Íran í gær. Írönsk sjónvarpsstöð segir verulega umbun bíða hvers þess sem hefur uppi á manninum. Bandarískir miðlar segja hinum hafa verið bjargað og einnig flugmanni A-10 herflugvélar sem Íransher skaut niður yfir Persaflóa.
Eldflauga- og drónaárásir halda áfram á báða bóga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta