Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússlandsher gerði stórfelldar árásir víðs vegar um Úkraínu í dag

Að minnsta kosti 14 voru drepnir í árásum Rússlandshers á Úkraínu í dag, sem hefur á síðustu vikum bætt í árásarþunga sinn að degi til. Á sjötta hundrað drónum og tugum eldflauga var beint að skotmörkum víða um land. Úkraínumenn hafa lagt til vopnahlé yfir páskana en rússnesk yfirvöld segjast ekki hafa fengið skýra tillögu þess efnis. Forsetinn Volodymyr Zelensky og utanríkisráðherrann Andriy Sybiga voru þungorðir í garð Rússa sem þeir segja að hefðu átt að draga úr árásum en auka í aðdraganda hátíðarinnar. Úkraínumenn segja Rússa vilja draga stríðið á langinn til að sölsa undir sig meira landsvæði og að þeir hafi ekki nokkurn áhuga á friði. Friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjanna hafa tafist vegna þátttöku þeirra í árásum á Íran. Zelensky kveðst hafa boðið bandarískum erindrekum til K
Rússlandsher gerði stórfelldar árásir víðs vegar um Úkraínu í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta