Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Bjargvætturinn“ – Sýning um hetjulega björgun í Ölfusá

„Bjargvætturinn“ er nafn á nýrri sýningu hjá Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka en þar er sagt frá björgun manns í Ölfusá 1944 þegar brúin brast undan vörubíl, sem fór í ána. Maðurinn náði að bjarga sér á varadekki bílsins en dekkið sjálft er aðalsýningargripurinn á sýningunni.Margir mættu þegar sýningin var formlega opnuð, meðal annars fjölskylda Jóns Ingibergs Guðmundssonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns á Selfossi, en hann dó 2001. Sýningin snýst um björgun Jóns úr Ölfusá þegar tveir vörubílar frá Kaupfélagi Árnesinga fóru fram af gömlu Ölfusárbrúnni 6. september 1944.Brúin brast undan þunganum, bílarnir féllu í ána og Jón slapp naumlega lifandi. Sýningin er í húsi sem heitir Kirkjubær og er hluti af safni byggðasafnsins.„Annar lenti á grynningum en hinn fór á bólakaf en fyrir harðræði
„Bjargvætturinn“ – Sýning um hetjulega björgun í Ölfusá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta