Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfir 1300 ökumenn kærðir í fyrra vegna notkunar snjalltækja við akstur

Yfir þrettán hundruð ökumenn voru kærðir í fyrra fyrir notkun farsíma eða annars snjalltækis í akstri. Lögreglan segir þessi umferðarlagabrot hafa færst í aukana.„Við erum að stöðva að meðaltali 95 ökumenn í hverjum einasta mánuði ársins fyrir að vera í síma þegar þeir eru að keyra. Og það er bara of há tala,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Árni segir að þessi brot færist í aukana.„Síðustu þrjú, fjögur ár hafa þetta verið í kringum þúsund ökumenn á hverju ári, en í fyrra voru alveg skýr merki um að það væri aukning og við erum með rúmlega 1300 ökumenn árið 2025 sem eru kærðir fyrir að vera í farsíma við akstur.“ 40 ÞÚSUND Í SEKT OG EINN PUNKTUR Í ÖKUFERILSSKRÁ Lögreglumenn hafa oft frumkvæði að eftirliti með umferðarl
Yfir 1300 ökumenn kærðir í fyrra vegna notkunar snjalltækja við akstur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta