Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Þau Baldur Skúlason og Erla Hlín Guðmundsdóttir skipa Amor Vincit Omnia. Þau gáfu út einkar góða stuttskífu árið 2024, brb babe, sem vakti verðskuldaða athygli og skrifaði ég m.a.: „Raftónlist, sem hótar því að fara hvert sem er ... Þetta er popp, reif, jaðartónlist, allt í einni bendu og tvær, þrjár stefnur aukreitis í pottinum að lágmarki. Það er ekki tilviljun að það sé verið að „tosa“ um þennan dúett eins og Færeyingar hefðu orðað það. Einkar lofandi og mætti ég heyra meira?“ Og nú er ég að heyra meira því að Extended Babe er önnur stuttskífa dúettsins, fimm laga gripur rétt eins og sá fyrri.Extended Babe er plata eftir Amor Vincit Omnia. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Þetta er kúl stöff hjá krökkunum, f