Arnar S. Gunnarsson, forstöðumaður öryggislausna hjá Ok, segir starfsfólk fyrirtækisins bregðast við allt að sex vefveiðimálum í hverri viku. Sum séu verulega alvarleg. Hann segir minni fyrirtæki í meiri hættu en þau stærri og að Ok hafi aðstoðað stofnanir, fyrirtæki og sveitarfélög sem hafi orðið fyrir árásum og svikum.