Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum“

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar voru lesnir upp í Hallgrímskirkju í dag, eins og hefð er fyrir á föstudaginn langa. Átta lesarar skiptu með sér upplestrinum í Hallgrímskirkju, sumir sem þekkja sálmana vel og hafa flutt þá áður, en aðrir gerðu það í fyrsta sinn. Einn þeirra er Ítalinn Roberto Pagani. Hann er sá fyrsti til að flytja þá sem hefur ekki íslensku að móðurmáli.„Þetta er auðvitað mjög spennandi en ég finn líka fyrir mikilli ábyrgð. Þetta hefur verið stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum sem eru mjög mikilvægur partur af menningararfi Íslands,“ segir Roberto.Roberto hefur búið hér á landi síðan 2014 og þekkir íslenska tungumálið líklega betur en flestir. Hann er aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur meðal annars kennt íslensk handritafræði og forníslensku. PASSÍUSÁLMARNI
„Stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta