Bandaríski herinn er sagður hafa bjargað öðrum af tveimur flugmönnum bandarískrar herþotu sem var skotin niður yfir Íran síðdegis. Ekkert liggur fyrir um líðan hans eða afdrif hins flugmannsins.Frá þessu greina fjölmiðlar vestanhafs og vísa ýmist í ónafngreinda heimildarmenn innan hersins eða Bandaríkjastjórnar. Írönsk yfirvöld settu fé til höfuðs flugmönnunum, að því er íranskir ríkismiðlar herma.CNN hefur eftir ónafngreindum ísraelskum heimildarmönnum að Ísraelsher ætli að stöðva árásir á Íran meðan leit að áhöfninni stendur yfir.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki tjáð sig um atvikið en hann hefur verið upplýstur um það, að sagði Karoline Leavitt upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, við New York Times.Fréttin hefur verið uppfærð.