Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Önnur bandarísk herþota sögð hafa hrapað

Bandarísk herflugvél hrapaði nærri Hormús-sundi á Persaflóasvæðinu í dag og flugmanninum var bjargað. New York Times hefur þetta eftir ónafngreindum bandarískum embættismönnum. Þetta hafi gerst um svipað leyti og bandarísk herþota var skotin niður yfir Íran.Fjölmiðlar vestanhafs herma að einum úr tveggja manna áhöfn þotunnar hafi verið bjargað. Bandarísk stjórnvöld hafa lítið sagt að öðru leyti en að upplýsingafulltrúi Hvíta hússins sagði að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði verið upplýstur um atvikið.
Önnur bandarísk herþota sögð hafa hrapað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta