Nokkur snjóflóð hafa verið skráð af ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands í dag. Snjóflóðin þykja ekki meiri háttar en víða á landinu er mikið fannfergi.Töluverð hætta er til fjalla í Eyjafirði, á Tröllaskaga og á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu. Nokkur hætta þykir á Suðvesturhorninu og norðanverðum Vestfjörðunum.Ofanflóðavakt skráði til að mynda hjá sér flekaflóð í Móskarðshnjúkum en athygli var vakin á því í Facebook-hópnum Snjóflóðatilkynningar. Vélsleðaför eru í hlíðinni og líklegt þykir að flóðið sé af mannavöldum. Hvað er flekaflóð? Hér er svar Hörpu Grímsdóttur á Vísindavefnum við spurningunni „Af hverju falla snjóflóð?“ Í svarinu er að finna greinargóða lýsingu á lekaflóðum.„Snjóflóðum er gjarnan skipt í tvo flokka: Lausasnjóflóð og flekaflóð. Bæði lausa- og flekaflóð orsakast af því a