Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beðið bandaríska þingið um að samþykkja að stórauka fjárveitingar til varnarmála. Hækkunin yrði sú mesta síðan í síðari heimsstyrjöld.Trump vill að þingið samþykki að verja 1.500 milljörðum dala til varnarmála, 42% meira en í fyrra, meðal annars til að efla skipaflota bandaríska hersins, fjármagna „gullnu hvelfinguna“, loftvarnarkerfi sem Trump hefur boðað, og hækka laun hermanna.Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur þegar óskað eftir 200 milljörðum dala vegna stríðsins í Íran og myndi hækkunin sem Hvíta húsið fer fram á leggjast ofan á þann kostnað. Hækkunin yrði því umtalsverð. LEGGJA TIL NIÐURSKURÐ Í LOFTSLAGS- OG HÚSNÆÐISMÁLUM Stjórnarliðar leggja til að á móti megi skera niður verkefni sem falla meðal annars undir loftslags-, húsnæðis- og menntamál