Birting Panama-skjalanna svokölluðu svipti hulunni af umfangsmikilli aflandsþjónustu lögfræðistofunnar Mossack Fonseca sem varðaði rúmlega 200 fyrirtæki og einstaklinga í rúmlega 200 löndum, þar á meðal Íslandi. Í dag eru tíu ár frá því að fyrst var fjallað um Panamaskjölin en margt er enn óuppgert.Panama-skjölin voru gögn Mossack Fonseca í Panama og þar var ljóstrað upp um miklar eignir í skattaskjólum. Lekinn er einn sá umfangsmesti í sögunni – yfir 11 milljónir skjala, tölvupósta og stofnskjala aflandsfélaga. Þau innihéldu upplýsingar um yfir 214.000 aflandsfélög víða um heim.800 aflandsfélög tengd 600 Íslendingum komu fram í skjölunum.Fyrsta umfjöllun um Panama-skjölin hér á landi var í Kastljósi 3. apríl 2016. Umfjöllunin var unnin í samstarfi við Reykjavík Media, Süddeutsche Zeitung