Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loka vegum vegna snjóþyngsla á norðaustanverðu landinu

Vegagerðin hefur ákveðið að loka hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi vegna mikilla snjóþyngsla og ófærðar. Fjarðarheiði hefur einnig verið lokað. Vegirnir munu ekki opna fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið og fólk sem ekki kemst leiðar sinnar í landshlutanum getur þurft að huga að ráðstöfunum fyrir gistingu.Sveinbjörn Hjálmarsson, þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni, segir aðstæður skelfilegar.„Það var í rauninni ákveðið að grípa til þessara aðgerða, að loka þessu, vegna þess að færðin er að breytast mjög mikið og mjög hratt. Það snjóar alveg ógeðslega mikið, er blint, og fólk út af – bæði heimamenn og ferðamenn,“ segir Sveinbjörn. Hann bendir á að fjöldi fólks hafi hringt í Vegagerðina og tilkynnt um bíla sem sátu fastir.„Því var ákveðið að grípa inn í áður en aðstæður versna. Það er al
Loka vegum vegna snjóþyngsla á norðaustanverðu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta