Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt á kafi í snjó og stuði á Sigló

Aðstæður á skíðasvæðum eru með ágætum víðast hvar á landinu í dag og fjöldi fólks hefur gert sér ferð í brekkur líkt og hefð er fyrir yfir páskana. Það á meðal annars við á Siglufirði en bærinn er fullur af skíðafólki.Fréttastofa náði tali af Birgi Egilssyni, svæðisstjóra í Skarðsdal.„Ég myndi segja að það væri gífurlegur fjöldi af fólki hérna þar sem að bílastæðið okkar pakkaðist upp á bara svipstundu og það er lagt hérna lengst niður í brekkur. Aðstæður eru bara prýðilegar. Það er mjög gott veður og mikil blíða þannig lagað. Sólin skín svona létt í gegnum skýin,“ segir Birgir.Þó hefur ekki tekist að opna allar skíðalyftur í Siglufirði en efsta lyftan í Skarðsdal, búngu-lyfta, er lokuð vegna gífurlega mikils snjómagns.Það reyndist eitthvað meiri snjór en þið viljið hafa?„Við náttúrulega v
Allt á kafi í snjó og stuði á Sigló

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta