Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út í kjölfar þess að margir ökumenn lentu í vanda vegna illviðris og ófærðar í gærkvöld. Hvassviðri og lélegt skyggni léku ökumenn grátt á Möðrudalsöræfum. Bílar festust í snjónum og húsbíll þveraði veginn.Meðal þeirra sem aðstoðuðu ferðalanga þar í gær var Neyðarþjónusta Austurlands líkt og sést á myndskeiðum sem Ágústa Ágústsdóttir tók í gær.