Íslenska ríkið og Akureyrarbær hafa endurnýjað menningarsamning sín á milli. Samningurinn gildir til fjögurra ára og er framlag ríkisins til verkefna hans um 30% af heildarkostnaði. Áætlaður kostnaður er um 4,3 milljarðar króna og er hluti ríkisins því 1,3 milljarðar króna.Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirrituðu samninginn í gær. Greint er frá honum á vef Stjórnarráðs Íslands. STUÐLA AÐ UPPBYGGINGU AKUREYRAR SEM SVÆÐISBORGAR „Megintilgangur samningsins er áframhaldandi samstarf um þróun og starfsemi listasafns, atvinnuleikhúss, sinfóníuhljómsveitar og menningarhúss á Akureyri. Samningurinn er að þessu sinni jafnframt tengdur beint við þá stefnu að Akureyri verði formlega svæðisborg á Íslandi. Litið er á m