Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svíar stöðva skuggaskip

Landhelgisgæsla Svíþjóðar fór í morgun um borð í olíuskipið Flora 1 vegna gruns um að það hafi verið notað til að valda olíuleka í Eystrasalti í gær. Skipið er á viðskiptaþvinganalista Evrópusambandsins en á vef Sænska ríkisútvarpsins segir að það hafi óljósa fánastöðu.Það var snemma í gærmorgun sem Landhelgisgæsla Svíþjóðar uppgötvaði rúmlega 12 kílómetra langan olíuleka austur af Gotlandi, utan sænsku efnahagslögsögunnar. Núna í morgun fór Landhelgisgæslan, í samstarfi við sænsk lögregluyfirvöld, um borð í olíuskipið sem heitir Flora 1. Það liggur nú við akkeri sunnan við Ystad í Svíþjóð.Að svo stöddu er ekki talin hætta á að olía úr lekanum eigi eftir að ná til lands.Erlendu snekkjunni La Datcha var nýverið meinuð hafnarkoma á Akureyri vegna þvingunaraðgerða sem ná til Evrópska efnahags
Svíar stöðva skuggaskip

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta