Tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson, betur þekktur sem Eyfi, segist sjaldan nota samfélagsmiðla til að kvarta en að þessu sinni sé honum nokkuð misboðið. Hann er einn þeirra sem hafa verið ofrukkaðir um kílómetragjald. Samviskusamlega skráði Eyfi kílómetrastöðuna sína fyrir áramótin og uppfærðist svo staðan þegar hann mætti með bifreið sína til skoðunar á mánudaginn. Hafði hann Lesa meira