Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir flokkinn þurfa að fara aftur í rætur sínar til að ná til kjósenda í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Framsókn mældist með 4,7% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og Lilja segir niðurstöðurnar vera brýningu fyrir flokkinn.Fylgið minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings og fengi ekki kjördæmakjörna þingmenn. „VIÐ ÞURFUM AÐ GERA BETUR“ „Við erum í mikilli umbótavinnu og það bara tekur tíma,“ segir Lilja. Hún var kjörin formaður Framsóknarflokksins um miðjan febrúar og segist alltaf hafa vitað að það yrði áskorun að byggja upp flokkinn en að henni þyki það spennandi.„Ég finn auðvitað til mikillar ábyrgðar og þetta gerir það að verkum að við leggjum okkur enn frekar fram,