Rússneski herinn hefur látið eldflaugum og drónum rigna yfir skotmörk í Úkraínu síðan í gærkvöldi, að sögn talsmanns úkraínska flughersins. Þetta er í annað skiptið í þessari viku sem Rússar fylgja næturárásum eftir fram í dagsbirtu. Yuri Ihnat talsmaður flughersins sagði í sjónvarpsviðtali í gær að Rússar væru að þróa nýja dróna og aðlaga árásaráætlanir sínar til að komast í gegnum loftvarnir.Rússar skutu að minnsta kosti 400 langdrægum drónum var að Úkraínu síðasta sólarhringinn. Að minnsta kosti einn var drepinn og tugir eru særðir, auk þess sem þær hafa sett samgöngur og fleira úr skorðum víða um landið.Reuters hefur í dag eftir Dmitry Medvedev, varaformanni þjóðaröryggisráðs Rússlands, að þar á bæ ættu menn að stíga fastar niður fæti gegn hugsanlegri Evrópusambandsaðild Úkraínu. ESB v