Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og niður í Vopnafjörð í gær. Ungur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna.