Lögreglan á Norðurlandi eystra fór á þrjá afhendingarstaði netverslana með áfengi í gærkvöld og gerði þeim að loka. Ástæðan var sú að verið var að afhenda áfengi á helgidegi. Þetta segir Börkur Árnason, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.„Þetta gekk bara vel. Þau tóku bara vel í þetta,“ segir Börkur.Afhendingarstöðunum var lokað á níunda tímanum í gærkvöld. BANNAÐ AÐ SELJA ÁFENGI Á HELGIDÖGUM Samkvæmt áfengislögum er óheimilt að afhenda áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar, sumardaginn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánudag í ágúst. Þá skulu áfengisútsölustaðir einnig vera lokaðir.Vínbúðin er því lokuð en misjafnt virðist vera hvort afhendingarstaðir netverslana með áfengi verði opnir um páskana.Á vef Santé kemur fram að lokað sé yfir helgidagana og á vef Smáríkisins er a