Skilin sem gengu yfir landið í gær eru nú við norðausturströndina og í dag mjakast þau til vesturs með austan strekkingi eða allhvössum vindi og snjókomu á Norðaustur- og Austurlandi. Í öðrum landshlutum verður vindur hægari og víða él, en lengst af þurrt norðvestantil. Hiti um eða undir frostmarki að deginum.Á morgun má búast við 5 til 13 metrum á sekúndu og snjókomu með köflum norðan- og austanlands en hægari vindi og stöku éljum á Suður- og Vesturlandi. Veðurspáin gerir ráð fyrir því að veður verði með svipuðum hætti á páskadag.Á mánudag nálgast svo djúp lægð úr suðri með vaxandi austanátt, víða stormur á sunnanverðu landinu síðdegis samkvæmt nýjustu spám og slydda eða snjókoma og eru þeir sem hyggja á ferðalög hvattir til að fylgjast með veðurspám næstu daga.