Stefna núverandi stjórnvalda í Bretland gagnvart nágrannaríkjum sínum á meginlandi Evrópu kom berlega í ljós á blaðamannafundi Keir Starmers forsætisráðherra á miðvikudagsmorgun; aðeins nokkrum klukkutímum eftir að breska dagblaðið Telegraph birti ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að hann væri að íhuga að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu.„Hagsmunir okkar til lengri tíma kalla á nánari samstarf við bandalagsríki í Evrópu, sem og Evrópusambandið,“ sagði Starmer í ávarpi sínu.Hann staðfesti að nú væri verið að undirbúa næsta fund með leiðtogum Evrópusambandsins; þar ætti ekki aðeins að stimpla það sem rætt var um á síðasta fundi (sem haldinn var í fyrrasumar); bresk stjórnvöld vilja metnaðarfullar áætlanir um nánara samstarf í efnahagsmálum og varnarmálum.Dagsetning á þessum