Hópslagsmál brutust út í miðborg Reykjavíkur um það bil sem skemmtistöðum var lokað í nótt. Lögregla handtók þá sem sýndu af sér mesta ofbeldistilburði. Þeir voru allir ölvaðir að því er segir í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ölvaður maður var handtekinn eftir að hafa ógnað nærstöddum með hnífi en hann hafði róast þegar lögreglumenn bar að. Símaþjófur var handtekinn í miðborginni, enda gat eigandinn fylgst með staðsetningu tækisins, en þjófurinn reyndist jafnframt vopnaður kylfu og undir áhrifum fíkniefna. Innbrot í íbúð, þar sem rótað hafði verið til, og í bíl í miðborginni eru til rannsóknar og eins bílbruni við fyrirtæki í Hafnarfirði, þótt enginn grunur sé um íkveikju. Lögregla rannsakar einnig tildrög umferðaróhapps þar sem bíl var ekið yfir ljósastaur og hafnaði utan