Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandarískar leyniþjónustur telja Írana enn búa yfir talsverðum árásarmætti

Um það bil helmingur eldflaugaskotpalla Írana er enn sagður óskemmdur, einnig mikið magn eldflauga og landið á þúsundir árásardróna á lager þrátt fyrir daglegar árásir herja Ísraels og Bandaríkjanna síðustu fimm vikur.CNN hefur þetta eftir þremur ónafngreindum heimildarmönnum sem vísa til nýlegra greininga bandarískra leyniþjónusta. Einn þeirra sagði Írana enn þá geta valdið verulegum usla um gervöll Mið-Austurlönd. Ekki er útilokað að hluti vopnabúrsins liggi óskemmdur en ónothæfur grafinn undir rústum eftir loftárásir.Leyniþjónustur segja hátt hlutfall langdrægra eldflauga meðfram ströndum Írans enn óskemmt, enda hafi Bandaríkjaher ekki gert loftárásir þar heldur einbeitt sér að skipum á hafinu.Þær flaugar eru lykillinn að þeirri ógn sem stafar af skipaumferð um Hormússund. Greining leyn
Bandarískar leyniþjónustur telja Írana enn búa yfir talsverðum árásarmætti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta