Christina Marie Plante, sem hvarf sporlaust í bandaríska ríkinu Arizona í maí árið 1994, þegar hún var þrettán ára, er fundin heil á húfi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu lögregluyfirvalda í Gila-sýslu á Facebook.Seinast sást til hennar ganga að hesthúsi nærri heimili sínu, þar sem hrossið hennar stóð á stalli. Umfangsmikil leit að Plante bar engan árangur og að lokum var nafn hennar skráð á lista yfir týnd börn sem er aðgengilegur um gervöll Bandaríkin.Málinu var haldið opnu og rannsakendur eltu allar vísbendingar um örlög Plante. Það bar loks árangur í mars og rannsakendur hafa staðfest að konan sem fannst er engin önnur en Christina Marie Plante.Lögregla segir tækniframförum og nýjum rannsóknaraðferðum að þakka að konan fannst og einnig þrotlausu starfi rannsakendanna sjálfra. Hún