Eldflaug yfir Jerúsalem.EPA / ABIR SULTANEkkert útlit er fyrir að styrjaldarátökum linni í Mið-Austurlöndum. Íranir og samherjar þeirra hafa í nótt gert árásir á Ísrael og bandarískar eignir í löndunum við Persaflóa, meðal annars stálverksmiðju í Abú Dhabí og álver í Barein.Ísraelsher segir loftvarnir hafa skotið niður íranskar eldflaugar og Hútar í Jemen segjast hafa skotið skæðadrífu flauga að stórborginni Tel Aviv. Ekki hafa borist tíðindi af mannskaða eða skemmdum á mannvirkjum. Ríkisfréttastöð Írans segir almenna borgara hafa verið drepna í tveimur loftárásum á brú í norðanverðu landinu.