Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregluyfirvöld hafa ákveðið að banna samkomu múslíma af ótta við hryðjuverk

Lögregluyfirvöld í París hafa bannað árlega hátíð franskra múslíma í norðanverðri borginni og segja það gert vegna mikillar hættu á stórfelldri hryðjuverkaárás. Ríkissaksóknari telur hóp studdan af Íran hafa lagt á ráðin um árás og lögregla kveðst hafa komist á snoðir um að litlir hópar öfgahægrimanna hafi einnig ætlað að leggja til atlögu að gestum hátíðarinnar. Hún átti að hefjast í Bourget-hverfinu í dag og standa fram á mánudag, annan í páskum. Í tilkynningu lögreglu segir að til samkomunnar hafi verið boðað í skugga mikillar spennu á heimsvísu og heima fyrir. Hún leggur áherslu á ógnina með því að segjast hafa komið í veg fyrir sprengjutilræði í Parísarútibúi Bank of America um liðna helgi. Einnig var vitnað til mjög skautaðra kappræðna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í mars. Inn
Lögregluyfirvöld hafa ákveðið að banna samkomu múslíma af ótta við hryðjuverk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta