Artemis-áhöfnin kveikti í nótt á öflugum eldflaugum Orion-farsins í sex mínútur til að beina því af sporbraut jarðar í átt að tunglinu. Sérfræðingar NASA fylgdust gaumgæfilega með því að öll tæki virkuðu rétt þannig að farið kæmist á rétta braut. Ferðin að tunglinu, sú fyrsta í yfir fimmtíu ár, tekur um þrjá sólarhringa og leiðangurinn umhverfis það um tíu daga alls. Aðdráttarafl tunglsins er notað til að sveifla farinu umhverfis það og snúa því aftur til jarðar, án þess að beita vélarafli. Áhöfn Artemis II er nú á leið til tunglsins eftir að hafa hringsólað jörðu. Öflugar eldflaugar Orion-farsins þeyttu því af stað í nótt. Ferðin að tunglinu tekur 3 sólarhringa og leiðangurinn alls 10. Forstjóri NASA segir áhöfninni líða vel.Þá hefur áhöfnin, Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og