Vilji til áframhalds og styrkingar áratugalangra tengsla og gjöfulla samskipta Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum var meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi í gær símleiðis við Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á vefjum bandaríska utanríkisráðuneytisins og Stjórnarráðsins íslenska segir að ráðherrarnir hafi báðir lýst áhuga á að efla tvíhliða samstarf ríkjanna. Þorgerður kveðst hafa af þunga áréttað að samstaða innan Atlantshafsbandalagsins sé mikilvægari en nokkru sinni fyrr. „Við áttum gott og hreinskiptið samtal, ekki aðeins um mikilvægi tvíhliða samskipta ríkja okkar, heldur einnig um þær viðsjár sem uppi eru í heiminum,“ segir Þorgerður Katrín. Hún sagði einnig þýðingarmikið að aukið yrði í þegar umfangsmikla viðskip