Björgunarsveitir hafa átt í nógu að snúast í kvöld, þá aðallega á norðaustur horni landsins en Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi til klukkan tvö í nótt.Björgunarsveitin Sveinungi á Borgarfirði eystra kom snjóruðningstæki sem sat fast til bjargar. Á leiðinni að snjóruðningstækinu aðstoðaði Sveinungi einnig bíl sem sat fastur.Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.Fyrr í kvöld lentu ferðalangar í bílum í vandræðum á Möðrudalsöræfum. Ferðalangarnir voru sóttir af fjórum björgunarsveitum úr þremur áttum.Þá var eitthvað um fasta bíla vestan við Katastaði og flugvöllinn á Raufarhöfn. Björgunarsveitin Pólstjarnan á Raufarhöfn kom þeim til bjargar.