Viðbótarvarnir vegna ofanflóða fyrir ofan Flateyri sönnuðu gildi sitt fyrir nokkrum dögum þegar snjóflóð féll á keilurnar sem reistar voru síðasta sumar.Ráðist var í gerð viðbótarvarna eftir snjóflóðið sem féll á bæinn 2020. Jón Magnússon snjóflóðaeftirlitsmaður bendir á að þær varnir sem þá voru til staðar hafi verndað megnið af þorpinu. Hins vegar fór iðufaldur flóðsins yfir garðinn með alvarlegum afleiðingum.„Við vorum svo sem heppin í því tilfelli að við náðum að bjarga þessari stúlku sem festist þar inni,“ segir Jón.Mikilvægt sé að nú standi til að verja höfnina. Flateyrarvegi hefur verið lokað nokkrum sinnum vegna snjóflóðahættu síðustu vikur. Þá er engin leið fær úr bænum nema sjóleiðis. „Í vondum veðrum og miklum snjó og ströndin lokuð þá er höfnin lífæðin,“ segir Jón.