„Framsóknarflokkurinn er í algjörri úlfakreppu,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups fengi Framsóknarflokkurinn engan mann kjörinn á Alþingi ef gengið yrði til kosninga nú.Formannsskiptin hafi engu breytt fyrir flokkinn og Eiríkur segir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, sem á ekki sæti á Alþingi, vera í erfiðri stöðu.Hann segir Miðflokkinn, sem er í mikilli uppsveiflu og mælist næststærstur í könnun Gallups, taka plássið sem Framsókn átti áður. ÓHUGSANDI AÐ VINSTRI GRÆN DYTTU ÚT Eiríkur segir nær óhugsandi að Framsóknarflokkurinn, burðarflokkur í íslenskum stjórnmálum, detti út af þingi.„En þetta er þó þróun sem er byrjuð að verða í þessa átt, að svona kjarnaflokkurinn, hinn svokallaði fjórflokkur, það er farið að kvarnast úr honum. Vinstri gr