Ásókn í neyðarskýli á vegum Reykjavíkurborgar hefur minnkað undanfarið ár. Deildarstjóri segir það sýna árangurinn af breyttri stefnu í málefnum heimilislausra.Til skoðunar er að draga úr þörf fyrir neyðarrymi samhliða husæðisuppbyggingu.81 gisti í neyðarskýlum borgarinnar í janúar og febrúar í ár – en rúmlega hundrað á sama tíma í fyrra. VERIÐ AÐ GRÍPA FÓLK FYRR EN ÁÐUR Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg í málefnum heimilislausra, segir að breytt stefna borgarinnar birtist meðal annars í því að gripið sé fyrr inn í þegar einstaklingar lenda í heimilisleysi.„Hvort sem það er með húsnæðisumsóknum eða finna önnur úrræði sem henta einstaklingum,“ segir Soffía Hjördís.Hún segir Reykjavíkurborg einnig hafa verið að byggja upp eigið húsnæði, sem hluta af aðgerðaáætl