Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mönnuð tunglferð afrakstur áratuga af undirbúningi og vinnu

Íslenskur vísindamaður sem starfaði hjá NASA segir geimskot gærdagsins, þar sem geimfarinu Orion var skotið á loft í átt að tunglinu, vera afrakstur áratuga vinnu og undirbúnings. RISAVAXIÐ VERKEFNI Ari Kristinn Jónsson er formaður nýsköpunarsjóðs NATO. Hann starfaði sem vísindamaður og stjórnandi hjá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, í tíu ár, þar sem hann leiddi þróun gervigreindartækni fyrir stjórnun geimferða. Hann segir geimskotið afrakstur áratuga vinnu sem megi rekja til stefnubreytingar hjá NASA.„Þetta er risavaxið verkefni og það verður að segjast eins og er að hugmyndin á bakvið þetta, það sem við sáum í gærkvöldi, nær allt til baka til sennilega ársins 2001. Þegar NASA skipti um stefnu og ákvað að færa sig frá því að skoða sólkerfið með ómönnuðum geimförum og vildi stefna
Mönnuð tunglferð afrakstur áratuga af undirbúningi og vinnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta