Það hafa verið tilviljanakenndar truflanir á neti víða um Rússland síðustu ár en síðustu fjórar vikur hefur einnig verið stopult netsamband í Moskvu. Yfirvöld segja þetta gert til að tryggja öryggi, berjast gegn netsvindli og trufla drónaárásir frá Úkraínu.Sérfræðingar telja þó að verið sé að prófa að rjúfa netsamband ef grípa þyrfti til þess, kæmi til óeirða líkt og í Íran fyrr á árinu.Varaformaður upplýsingastefnunefndar Dúmunnar, Andrei Svintsov, segir næst á dagskrá að gera lista yfir leyfilegar vefsíður, svo sem hjá bönkum, ríkisstofnunum og skólum. Ekki yrði lokað fyrir aðgang að þeim þó að hætta þyki vofa yfir.Yekaterina, sem býr í Moskvu, segir stöðuna bagalega. Erfitt sé að panta leigubíl, eiga í samskiptum við samstarfsmenn og senda skýrslur. „Þetta er martröð,“ segir hún.