Gylfi Þór Gíslason, formaður Samfylkingarinnar á Vestfjörðum, hefur sagt sig af lista eftir deilur á lokuðum fundi flokksins síðasta sunnudag.Gylfi segir að Svanfríður Bergvinsdóttir, nýr oddviti listans, hafi ásamt Hrafnhildi Hrönn Óðinsdóttur og Finneyju Rakel Árnadóttur lýst yfir óánægju sinni með að hann leiddi listann. Það hafi verið vegna þess að Gylfi hafi talað illa um annað fólk á listanum og hafi viðhaft baktal sem Gylfi kannast ekki við.„Ég hélt að ég talaði ekkert öðruvísi en annað fólk,“ segir Gylfi. Þá hafi þær einnig lýst yfir óánægju með störf hans. „Í aðra höndina var ég að gera ekki neitt og í hina höndina var ég að gera allt sjálfur,“ segir Gylfi.Fyrir þetta höfðu tveir sagt sig af listanum en það eru þau Sigurrós Elddís Huldudóttir og Guðmundur Ólafsson. Sigurrós hafi t