Fjarðarheiði og veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi varð smávægilegur árekstur á veginum um Fagradal. Engin slys urðu á fólki. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörgu, segir björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði vera á leiðinni í Fagradal. Snjó blásið burt af Fjararheiði, myndin er úr safni.RÚV / Rúnar Snær ReynissonAnnars hefur dagurinn hjá björgunarsveitum verið tiltölulega rólegur. Björgunarsveitin Tindur á Ólafsfirði var kölluð út í morgun þar sem þakplötur og annað losnaði í vindi. Þæfingsfærð hefur verið á Snæfellsnesi í dag og í hádeginu var björgunarsveit kölluð út í hádeginu vegna bíls sem var fastur við Öndverðarnes.