Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi dómsmálaráðherra úr embætti, hefur fjölmiðillinn Reuters eftir heimildum sínum innan Hvíta hússins. Hann er sagður hafa verið ósáttur við frammistöðu hennar í embætti, svo sem varðandi skjölin í Epstein-málinu. Bondi var sökuð um að hafa ekki birt öll skjöl tengd málinu.Þá er Trump einnig sagður hafa verið ósáttur við seinagang Bondi við að sækja til saka gagnrýnendur og andstæðinga sem hann vildi fá fyrir dóm.CNN og aðrir bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Todd Blanche, sem gegnt hefur embætti varadómsmálaráðherra og verið lögmaður Trumps, taki við stöðu starfandi dómsmálaráðherra.Pam Bondi hefur verið dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps.EPA / JIM LO SCALZO