Hryðjuverkamálið verður tekið fyrir aftur í Landsrétti 21. maí. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í málinu og vísaði því aftur til dómstólsins í byrjun mars. Ákærðu var gefið að sök stórfelld vopnalagabrot og tilraun til hryðjuverka.Málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2024 eftir umfangsmikla rannsókn lögreglu. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru báðir sýknaðir af tilraun til hryðjuverka og aðild í tilraun til hryðjuverka í Landsrétti og Héraðsdómi Reykjavíkur. Á báðum dómstigum hlutu þeir dóm fyrir vopnalagabrot þó að refsing hefði verið milduð í Landsrétti.Hæstiréttur gerði stórfelldar athugasemdir við dóm Landsréttar í málinu og taldi annmarka hafa verið á túlkun dómstólsins á sönnunarkröfum. Einnig hafi verið annmarkar á því hvernig Landsréttur s