Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að í Mið-Austurlöndum hefðu árásir þar sem engu væri eirt færst í aukana. Ráðist væri á almenna borgara og borgaralega innviði.„Við erum á barmi stríðs sem gæti náð til Mið-Austurlanda allra og áhrifanna gætir nú þegar um allan heim,“ sagði Guterres við blaðamenn í dag. Verð á mat og eldsneyti hafi hækkað sem komi verst niður á þeim fátækustu. Verði stríðsvélin þanin áfram eiga átökin eftir að stigmagnast. „Stöðva verður spíral dauða og eyðileggingar,“ sagði Guterres, sem vísaði einnig til stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að deilumál skuli útkljá friðsamlega. Virða þurfi fullveldi og landhelgi allra aðildarríkja og virða og verja almenna borgara og almenna innviði, svo sem kjarnorkuinnviði.Þá upplýsti Guterr