„Þetta eru sérstakir kjörkassar, framleiddir sem slíkir. Aðalbreytingin er sú að þeir eru svartir á litinn og eru úr plasti,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar.„Við erum að segja skilið við trékassana sem við höfum notað hingað til og hafa gegnt sínu hlutverki mjög vel. Það hefur verið ákveðið ákall frá þeim sem vinna við kosningarnar að fá léttari kassa og sem staflast betur, þannig að það fari minna fyrir þeim þegar þeir eru ekki í notkun. Við höfum orðið við þessu ákalli,“ segir Ástríður.Ástríður segir að um 900 kassar hafi verið pantaðir og heildarkostnaður hlaupi á allt að 15 milljónum með öllu – kössunum sjálfum, merkingum og nýjum innsiglum.Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkass