Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fagnar viðhaldi á Hvalfjarðargöngum en ekki lengd lokunar

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir að fyrirhugaðar lokanir á Hvalfjarðargöngum í apríl og maí komi til með að hafa umtalsverð áhrif.„Ekki aðeins fyrir fólk og fyrirtæki á Akranesi eða norðan Hvalfjarðar, heldur allt norðan- og vestanvert landið,“ segir Haraldur.Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur mánudags til föstudags frá klukkan 21:30 til 06:00 að morgni frá 7. apríl til 29. maí. Haraldur segir að áhrifa muni gæta sérstaklega þar sem lokað er snemma að kvöldi. Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.„Við munum eiga samtal við Vegagerðina og ræða hvort hægt sé að vinna með þessa stöðu,“ segir hann. „Það myndi breyta miklu að fá fylgdarakstur að minnsta kosti hluta af lokunartímanum,“ segir Haraldur sem tekur fram að fylgdarakstur hafi áður verið
Fagnar viðhaldi á Hvalfjarðargöngum en ekki lengd lokunar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta