Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Útlit fyrir gott páskaveður eftir daginn í dag

Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu.Viðvaranir færast norður og austur yfir landið með deginum og standa fram á kvöld. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir páskaveðrið líta vel út eftir daginn í dag. BLINT Á HOLTAVÖRÐUHEIÐI OG BRÖTTUBREKKU EN BÚIÐ AÐ OPNA Krapi og snjókoma er á Hellisheiði og í Þrengslum og þæfingur hefur verið í morgun á milli Borgarness og Baulu.„Það er búið að opna Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en það er enn frekar hvasst og skafrenningur á báðum þessum vegum. Það stendur þó til bóta en það mun áfram snjóa þar í hægum vindi, alveg þar til síðdegis,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni.Vegirnir vestur á firði eru opnir en á sumum stöðum er snjóþekja
Útlit fyrir gott páskaveður eftir daginn í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta